Sport

Við áttum að vinna þennan leik

NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger var ekki par kátur með frammistöðu sinna manna í Arsenal þegar liðið lá fyrir Middlesbrough í dag. Wenger sagði sína menn hafa verið betri allan leikinn og þótti þá eiga skilið að vinna hann. "Við hefðum aldrei átt að tapa þessum leik og mér þótti liðið skorta ákveðni í dag. Við fórum illa með mörg færi og hefðum í raun átt að vera búnir að klára dæmið í fyrri hálfleiknum. Þess í stað gefum við þeim tvö mörk á silfurfati og töpum leiknum," sagði Wenger hundfúll. Steve McClaren, stjóri Middlesbrough var skiljanlega ekki jafn fúll og hrósaði liði sínu fyrir sigurinn. "Við höfðum tapað átta leikjum í röð fyrir Arsenal og ég hafði það á tilfinningunni að í dag myndum við breyta því. Arsenal fékk nokkur góð færi á fyrstu mínútunum, en við vörðumst vel og ég hefði í raun viljað sjá okkur bæta við fleiri mörkum," sagði McClaren.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×