Sport

Merkur áfangi hjá Rooney

NordicPhotos/GettyImages
Táningurinn Wayne Rooney náði þeim merkilega áfanga um helgina að verða yngsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að spila 100 leiki. Hann hefur meira að segja nokkuð forskot á þann sem átti metið áður en Chris Bart-Williams var 20 ára og 247 daga gamall þegar hann lék sinn 100. úrvalsdeildarleik, þá með Sheffield Wednesday árið 1995. Wayne Rooney var í gær 19 ára og 321 dags gamall, þegar hann var í byrjunarliði Manchester United sem gerði 1--1 jafntefli við granna sína í Manchester City.Michael Owen var ekki orðinn 21 árs þegar hann lék sinn 100. úrvalsdeildarleik og hið sama má segja um Gareth Barry, Robbie Fowler og Joe Cole.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×