Sport

Leik Lokeren aflýst í gær

Leik Íslendingaliðs Lokeren gegn Lierse í belgísku deildinni í gær var frestað vegna hættuástands sem myndaðist á vellinum í kjölfar ausandi rigningar og þrumuveðurs. Dómari leiksins flautaði leikinn af eftir 20 mínútur, en þá var rigningin orðin svo mikil að ekki þótti ráðlegt að halda leiknum áfram. Ekki tók betra við þegar eldingu sló niður í eitt mastrið á vellinum og ljósin sló út, þannig að fljótlega eftir það var ákveðið að aflýsa leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×