Sport

Pardew skorar á leikmenn sína

Alan Pardew, knattspyrnustjóri West Ham, hefur skorað á framherja sína að sanna fyrir sér að hann þurfi ekki á kröftum Suður-Afríkumannsins Benny McCarthy að halda, með því að raða inn mörkum fyrir liðið. Pardew reyndi allt sem hann gat til að fá McCarthy lausan frá Porto áður en félagaskiptaglugginn lokaðist á Englandi á dögunum, en allt kom fyrir ekki, því samningar strönduðu milli félaganna tveggja. Pardew neitar að leggja árar í bát og hvetur framherja sína til að sanna fyrir sér að þeir þurfi ekki á McCarthy að halda. "Við erum með góðan hóp hérna, en mörkin hafa dálítið látið á sér standa á tíðum og það kostaði okkur tap gegn Bolton á dögunum. Það er erfitt að fá nýjan mann inn í liðið og gefa þau skilaboð til liðsins að hann eigi að vera betri en þeir sem fyrir eru, en heilbrigð samkeppni er yfirleitt af hinu góða í knattspyrnunni," sagði Pardew, en hans menn mæta Aston Villa í úrvalsdeildinni í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×