Sport

Vieira hefur ekki trú á Arsenal

Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Arsenal og núverandi leikmaður Juventus á Ítalíu, hefur ekki mikla trú á sínum gömlu félögum í Lundúnum og segist fagna því að eiga miklu betri möguleika á því að vinna Meistaradeildina í röðum þeirra. "Juventus er miklu sterkara lið en Arsenal á pappírunum og við erum með tvo landsliðsmenn sem berjast um hvert laust sæti í liðinu. Það er mikil pressa á liðinu hérna í Tórínó og ég hef ekki fundið fyrir svona mikilli pressu síðan fyrir nokkrum árum hjá Arsenal. Hún er jákvæð fyrir leikmennina, sem þrífast á henni til að gera góða hluti á vellinum. Fyrir mig er frábært að koma hingað, því ég þurfti virkilega á því að halda að breyta um umhverfi," sagði Frakkinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×