Sport

Reid hefur ekki áhuga á Plymouth

NordicPhotos/GettyImages
Fyrrum knattspyrnustjórinn Peter Reid segist ekki vera rétti maðurinn til að taka við liði Bjarna Guðjónssonar í ensku fyrstu deildinni, en hann er einn þeirra sem orðaður er við stöðu knattspyrnustjóra félagsins. "Plymouth er frábær klúbbur með frábæra stuðningsmenn, en ég held að ég sé ekki maðurinn til að taka við liðinu. Það sem þeir þurfa er maður sem getur tekið tvö eða þrjú ár í að byggja þar upp gott lið," sagði Reid, sem áður stýrði meðal annars Leeds og Coventry. Auk Reid hafa þeir Tony Pulis, fyrrum stjóri Stoke City og John Gregory verið orðaðir við stöðuna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×