Sport

Harewood heppinn að fá að byrja

Alan Pardew, stjóri West Ham, hefur viðurkennt að hann hafi verið lengi að velta því fyrir sér hvort hann ætti að velja Marlon Harewood í byrjunarlið West Ham fyrir leikinn gegn Aston Villa í gærkvöld, en eins og kom á daginn, átti stjórinn ekki eftir að sjá eftir því. "Ég verð að viðurkenna að ég var mikið að hugsa um að hafa hann á bekknum. Marlon er fullur af sjálfstrausti, en hefur stundum áhyggjur af leik sínum. Hann átti ekki sérstaklega góðan leik gegn Bolton og fór illa með færin, en hann var frábær í kvöld. Hann barðist svo vel að hann var alveg búinn þegar hann kom út af," sagði Pardew um hetju West Ham.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×