Sport

Heiðar fær sitt tækifæri

Chris Coleman hefur fullvissað Heiðar Helguson um að hann muni fá sitt tækifæri með liði Fulham áður en langt um líður, en sem stendur eru þeir Brian McBride og Tomasz Radzinski að leika vel og eiga fast sæti í liðinu. "Ég er mjög sáttur við þá Brian og Radz í augnablikinu. Þeir eru að skora mörk og liðinu gengur ágætlega. Ég get samt fullvissað Heiðar um að hans tækifæri mun koma fyrr eða síðar, það er engin spurning í mínum huga. Hann verður bara að halda áfram að æfa grimmt og vera þolinmóður, en það er nú líka eitt af því góða við hann Heiðar, hann er með svo jákvætt hugarfar," sagði Coleman



Fleiri fréttir

Sjá meira


×