Sport

O´Leary æfur út í sína menn

NordicPhotos/GettyImages
David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, vandaði leikmönnum sínum ekki kveðjurnar eftir tapið stóra gegn West Ham í úrvalsdeildinni í gærkvöldi og sagði að betra liðið hefði farið með sigur af hólmi. "Betra liðið vann með yfirburðum og enginn í mínu liði stóð undir væntingum. Við eigum erfiðan leik gegn Tottenham í næstu umferð og þeir unnu okkur með fimm mörkum í fyrra, í svipuðum leik og þessum. Þeir verða í baráttu um Evrópusæti í vetur og því er eins gott að mínir menn bretti hressilega upp ermarnar og mæti grimmir í þann leik," sagði O´Leary. "West Ham kom inn í þennan leik með meira hungur og meiri baráttu en við og við leyfðum þeim að valta yfir okkur. Það var engin heppni á bak við þennan sigur hjá þeim, þeir voru bara miklu betri," bætti stjórinn við.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×