Sport

Hver er staðan, Baros?

Stuðningsmenn West Ham skemmtu sér konunglega í 4-0 stórsigri liðsins á Aston Villa í gærkvöldi og sérstaklega þótti þeim gaman að stríða Milan Baros hjá Villa, en hann kaus heldur að ganga til liðs við þá en að fara til West Ham á dögunum. "Hver er staðan, Baros," sungu áhorfendurnir, sem réðu sér ekki af fögnuði enda hefur byrjun nýliðanna í úrvalsdeildinni farið fram úr björtustu vonum í upphafi leiktíðarinnar og liðið fagnaði glæstum sigri í hundraðasta leiknum undir stjórn Alan Pardew.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×