Sport

Yakubu að finna fjölina sína

NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn öflugi Yakubu hjá Middlesbrough er sannfærður um að hann sé nú búinn að vinna bug á markaleysinu sem hefur hrjáð hann að undanförnu og lofar að nú fari mörkin að koma. "Ég var ekki búinn að skora í nokkrum leikjum í röð og framherjar fara stundum í smá lægð þegar slíkt gerist. Markið gegn Arsenal var mér því afar mikilvægt og nú er ég kominn aftur með mikið sjálfstraust og get ekki beðið eftir að setja mark í næsta leik," sagði Yakubu, en miklar vonir eru bundnar við hann á Riverside.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×