Sport

Mido neitar að gefast upp

Egypski framherjinn Mido hjá Tottenham ætlar ekki að sætta sig við niðurstöður aganefndar enska knattspyrnusambandsins, sem dæmdi hann í þriggja leikja bann í kjölfar þess að hann var rekinn af velli gegn Chelsea á dögunum og fer fram á frekari réttarhöld í málinu. Málið snýst um að hann átti að hafa slegið Asier del Horno viljandi og fór svo ekki strax af velli þegar hann fékk að líta rauða spjaldið. Mido hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu í málinu, en frekari tíðinda er að vænta eftir rúma viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×