Sport

Henry frá í sex vikur?

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að eftir að hafa kynnt sér meiðsli Thierry Henry, sé hann þess fullviss að fyrirliðinn verði frá keppni í allt að sex vikur. Eftir læknisskoðun í gær var sagt að meiðsli Henry krefðust fjögurra vikna hvíldar, en stjórinn er ekki jafn bjartsýnn. "Ég held að þetta verði allt að sex vikur og ef hann kemur fyrr til baka, verður það bara þægilegur bónus. Það er auðvitað skelfilegt að vera án hans, því Henry er leikmaður á heimsmælikvarða. Við verðum bara að líta á þetta sem gott tækifæri fyrir ungu strákana að sanna sig í framlínunni," sagði Wenger.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×