Sport

Töpuðu á marki í uppbótartíma

Valsstúlkur töpuðu fyrsta leik sínum í 2. umferð Evrópukeppni kvenna í fótbolta í kvöld fyrir sænsku meisturunum í Djurgården/Älvsjö, 1-2. Sænska liðið skoraði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru komnar fram í uppbótartíma og markið var mjög umdeilt. Laufey Ólafsdóttir skoraði mark Vals í fyrri hálfleik og jafnaði þá leikinn. "Ég hefði ekki trúað því að ég yrði svona svekkt að tapa fyrir þessu sterka liði en við áttum svo sannarlega ekki skilið að tapa þessum leik. Við vorum búin að fá þrjú góð færi þegar þær komast yfir gegn gangi leiksins og áttum síðan að skora og komast yfir rétt fyrir leikhlé. Sigurmarkið þeirra er síðan greinilegt rangstöðumark sem gerir þetta enn meira svekkjandi sérstaklega þar sem þetta var eina færið þeirra í seinni hálfleik," sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals eftir leikinn en sænska liðið leikur á heimavelli í þessum riðli. Elísabet þurfti að horfa á eftir fyrirliða sínum upp á sjúkrahús þegar 20 mínútur voru eftir en Íris Andrésdóttir rotaðist þá eftir samstuð og óvíst er um framhaldið hjá henni í keppninni. Næsti leikur Valsliðsins er gegn serbneska liðinu Nis á fimmtudaginn. "Eftir að hafa séð þessi lið þá er ljóst að við eigum möguleika á að komast áfram en við megum ekki við að missa fleiri leikmenn," segir Elísabet en Valur er án Dóru Maríu Lárusdóttir sem er farin í nám til bandaríkjanna og þá er óvist hvort Íris verði meira með. "Tækifærið er fyrir hendi en ég hef mestar áhyggjur af því að þreyta eftir tímabilið komi til að reynast okkar erfiðasti andstæðingur," sagði Elísabet að lokum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×