Sport

Benitez ánægður með Crouch

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, telur að hinn hávaxni framherji Peter Crouch hafi ekki gert annað en að rökstyðja að hann eigi heima í enska landsliðshópnum með frammistöðu sinni gegn Real Betis í Meistaradeildinni í gær. "Peter Crouch lék mjög vel í gær og ég held að hann hafi sýnt Sven-Göran Eriksson fram á að hann eigi heima í enska landsliðinu. Hann er frábær framherji og hæð hans og styrkur gerir liðinu kleift að leika mun framar á vellinum en ella," sagði Benitez, en Crouch, sem Liverpool keypti fyrir sjö milljónir punda á dögunum, er óðum að koma til eftir erfið meiðsli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×