Sport

Luque frá í tvo mánuði

Eftir að sóknarmaðurinn Albert Luque hjá Newcastle gekkst undir ítarlega læknisskoðun í morgun kom í ljós að hann verður frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði vegna meiðsla sem hann varð fyrir í jafnteflinu við Fulham um síðustu helgi. Luque, sem kostaði Newcastle nálægt tíu milljónir punda frá Deportivo á Spáni, verður því lítið með liðinu á næstunni og það eru ekki góð tíðindi fyrir Graeme Souness og félaga, sem eiga í bullandi vandræðum í ensku úrvalsdeildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×