Sport

Erfiður leikur hjá Valsstúlkum

Valsstúlkur spila sinn annan leik í 2. umferð Evrópukeppninnar gegn serbneska liðinu Nis í dag en leikurinn hefst klukkan 15.00 að íslenskum tíma. Valur tapaði fyrsta leiknum gegn sænska liðinu Djurgården/Älvsjö en Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari er ekkert búin að afskrifa það að komast áfram. "Eftir að hafa séð hin liðin spila þá er ljóst að við eigum möguleika á að komast áfram en við megum ekki við að missa fleiri leikmenn. Tækifærið er fyrir hendi en ég hef mestar áhyggjur af því að þreyta eftir tímabilið komi til að reynast okkar erfiðasti andstæðingur," sagði Elísabet en þriðji og síðasti leikurinn er á laugardaginn. Tvö efstu liðin komast áfram í átta liða úrslit.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×