Sport

Neville klár í slaginn

Phil Neville, leikmaður Everton, segir það kjörið tækifæri fyrir Everton að ná sér á réttan kjöl með sigri á Dinamo Bukarest í Evrópukeppni félagsliða í kvöld, en liðið hefur byrjað nokkuð illa í ensku úrvalsdeildinni í ár. "Við þurfum á öllum stigum að halda sem í boði eru, bæði í Evrópu og í ensku deildinni eftir frekar rólega byrjun og ég held að sigur á Dinamo væri kjörin leið til að ná að lyfta liðinu, því þessir Evrópuleikir eru nú ástæðan fyrir því að menn eru í þessum barningi," sagði Neville, sem snýr aftur í leikmannahóp Everton eftir leikbann. Neville hefur gríðarlega reynslu af því að spila í Evrópukeppni, því hann vann hana sem kunnugt er fyrir 6 árum síðan með Manchester United og hefur áður mætt rúmenska liðinu. "Þessir leikmenn búa yfir mikilli tækni og ég man að það var erfitt að spila í Rúmeníu," sagði Neville.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×