Sport

Hughes ánægður með árið

NordicPhotos/GettyImages
Mark Hughes, knattspyrnustjóri Blackburn Rovers, segist ánægður með framfarir liðsins á því ári sem hann hefur nú verið við stjórnvölinn hjá liðinu. "Þetta hefur verið mjög ánægjulegur tími og mér þykir hafa náðst nokkuð góður árangur, ekki bara á vellinum, heldur hjá öllu félaginu og ég vona að það haldi áfram. Það er komin meiri staðfesta í leik liðsins og það er eitthvað sem við verðum að byggja á í framtíðinni," sagði Hughes.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×