Sport

Real hefur áhuga á Makelele

Carlos Queiros, sem er þjálfari hjá Manchester United og fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, gaf í gær vísbendingar um að gamla félagið hans hefði áhuga á að fá franska landsliðsmanninn Claude Makelele í sínar raðir á ný, en hann lék sem kunnugt er með Real Madrid áður en hann fór til Chelsea fyrir tveimur árum. "Í fyrsta lagi þarf Real á manni eins og honum að halda og í öðru lagi myndi það auðvelda okkur lífið í úrvalsdeildinni," sagði Queiros léttur í bragði, en Makelele er einn allra besti leikmaðurinn í sinni stöðu í úrvalsdeildinni, en gæti fengið minna að spila en ella í kjölfar komu Michael Essien eins og til dæmis Eiður Smári Guðjohnsen.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×