Sport

Laursen frá út tímabilið

NordicPhotos/GettyImages
Danski landsliðsmaðurinn Martin Laursen hjá Aston Villa, leikur ekki meira með liðinu á leiktíðinni, því hann er farinn til Bandaríkjanna í uppskurð vegna erfiðra hnémeiðsla sem hann á við að etja og missir því af öllu tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni. Þetta eru ekki gleðileg tíðindi fyrir David O´Leary og hans menn í Aston Villa, en stjórinn sagðist svosem ekki hafa búist við að fá hann til baka hvort eð var. "Ég sá hann spila dálítið á undirbúningstímabilinu og þá sá ég strax að ekki var allt með felldu," sagði O´Leary, sem á sínum tíma ætlaði sér að byggja vörn liðsins í kring um Danann sterka. Laursen var áður á mála hjá AC Milan á Ítalíu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×