Sport

Sheringham er einstakur

Alan Pardew, knattspyrnustjóri West Ham, segir að þó Teddy Sheringham sé svo sannarlega að storka aldurslögmálinu með því að vera fastamaður í liði í ensku úrvalsdeildinni, verði hann líklega að gefa honum örlitla hvíld svo hann sprengi sig ekki. "Ég spjallaði við Teddy í vikunni og hann er ansi stífur eftir átökin undanfarið. Við verðum að gæta vel að honum, því hann getur ekki spilað hvern einasta leik og veit það sjálfur. Við verðum að reyna að fá það besta út úr honum og ég hef alltaf sagt að Teddy er ekki af sömu tegund og við hinir, hann er vart mennskur að geta spilað svona lengi," sagði Pardew.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×