Sport

Fjöldi leikja í UEFA Cup í kvöld

Það eru hvorki fleiri né færri en 40 leikir á dagskrá í Evrópukeppni félagsliða í kvöld og þegar er sjö leikjum lokið. Ensku liðin Everton, Bolton og Middlesbrough eru öll að spila í kvöld og þá verða nokkrir Íslendingar í eldlínunni. Hollenska liðið AZ Alkmaar tapaði 5-3 fyrir Krylya Sovietov frá Rússlandi, Stuttgart sigraði NK Domzale 2-0, CSKA frá Moskvu lagði Midtjylland frá Danmörku 3-1 og Vitoria Setubal lagði Sampdoria 1-0. Þá urðu óvænt úrslit þegar Leverkusen tapaði 1-0 á heimavelli fyrir CSKA Sofia frá Búlgaríu. Árni Gautur Arason og félagar í Valerenga eru undir 2-0 á heimavelli gegn Steaua frá Búkarest þegar skammt er til hálfleiks og Kristján Örn Sigurðsson og félagar í Brann eru 1-0 yfir á heimavelli gegn Lokomotiv frá Moskvu, þegar um hálftími er til leiksloka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×