Sport

Gunnar Heiðar á skotskónum

Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum með liði sínu Halmstad í Svíþjóð í kvöld, en eins og svo oft áður á leiktíðinni nægði það ekki til sigurs. Gunnar Heiðar kom Halmstad yfir 1-0 gegn portúgalska liðinu Sporting Lissabon í Evrópukeppninni í kvöld, þegar hann skoraði úr vítaspyrnu skömmu fyrir lok fyrri hálfleiksins. Portúgalirnir komu þó sterkir til baka og tryggðu sér sigur með tveimur mörkum í upphafi síðari hálfleiks.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×