Sport

Weir bað stuðningsmenn afsökunar

David Weir, leikmaður Everton, bað stuðningsmenn liðsins afsökunar í viðtali skömmu eftir að hann gekk af velli eftir útreiðina sem hans menn hlutu í Búkarest í kvöld, en vonir Everton um að komast í riðlakeppnina í Evrópukeppni félagsliða eru svo gott sem úr sögunni eftir 5-1 tap liðsins í kvöld. "Mig langar fyrst og fremst að biðja stuðningsmenn okkar afsökunar á þessum hræðilegu úrslitum. Ég veit ekki hvað gerðist í síðari hálfleiknum, en liðið okkar hrundi bara gjörsamlega. Ég get ekki tjáð mig mikið um þetta núna, en það eina sem ég get sagt er að við erum miður okkar og þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir okkur. Við munum þó reyna allt sem við getum til að sigra í síðari leiknum heima," sagði Weir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×