Sport

Versta augnablik ferils míns

NordicPhotos/GettyImages
David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, sagði að tapið gegn Dinamo Búkarest í gær verstu upplifun sína á ferlinum sem knattspyrnustjóra, en bætti við að breytinga væri að vanta á liði sínu á næstunni því hann væri langt í frá ánægður með marga leikmenn sína. "Mér hefur aldrei liðið svona skelfilega eftir leik, þetta var hræðilegt tap," sagði Moyes, sem brýndi fyrir leikmönnum sínum fyrir leikinn að láta ekki erfiði síðustu leiktíðar fara til spillis með því að spila illa í Evrópukeppninni. "Mér þótti liðið mitt ráða ferðinni í fyrri hálfleik en í þeim síðari virkuðu nokkrir menn dálítið þreyttir og það verður að laga. Ég ber ábyrgð á að þetta lið nái árangri og því verð ég að gera eitthvað í málinu. Síðustu tveir leikir hafa ekki verið góðir og ljóst að ég verð að gera breytingar," sagði Moyes.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×