Sport

Heitt í kolunum hjá WBA

NordicPhotos/GettyImages
Bryan Robson, stjóri West Brom hefur viðurkennt að leikmenn liðsins hafi tekist á í búningsklefanum eftir tapið sára gegn Wigan í úrvalsdeildinni um síðustu helgi, en segir atburðinn jákvæðan í sínum augum, því það sýni að leikmönnum standi ekki á sama um lélegan árangur liðsins. "Jú, það urðu smá læti í búningsklefa okkar um síðustu helgi," játaði Robson þegar hann var spurður út í atvikið. "Ég tel það þó af hinu góða að leikmenn láti félaga sína heyra það ef þeir eru ekki að standa sig á vellinum. Fjögur stig úr fimm leikjum er ekki viðunandi árangur," sagði Robson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×