Sport

Friedel ánægður með samninginn

Brad Friedel, markvörður Blackburn Rovers, hefur undirritað nýjan þriggja ára samning við félagið og lofar að gefa liðinu "þrjú góð ár í viðbót", en hann hefur verið hjá Blackburn í fimm ár, en var áður hjá Liverpool. "Við erum búnir að vera að ræða nýjan samning síðan í apríl og ég held að ég geti verið mjög sáttur við að fá þriggja ára samning, verandi þetta gamall. Ég held ég eigi fjögur til fimm góð ár eftir, þannig að ég get lofað stuðningsmönnum Blackburn að þeir fá þrjú góð ár frá mér," sagði Bandaríkjamaðurinn, sem segist meta stuðningsmenn félagsins mikils.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×