Sport

Stelpurnar hækka um eitt sæti

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur hækkað um eitt sæti á styrkleikalista FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gefinn var út í gær. Ísland er nú í 17. sæti listans og hafði sætaskipti við Holland. Ástralía er í næsta sæti fyrir ofan. Ef einungis Evrópuþjóðir eru skoðaðar er Ísland í 10. sæti.Hækkunina má þakka góðu jafntefli sem lið Íslands náði í Svíþjóð og 3-0 sigrum á Hvít-Rússum í kjölfarið. Þá unnu íslensku stúlkurnar lið Skota ytra, 2-0, og töpuðu fyrir liði Bandaríkjanna, 3-0. Alls eru 124 knattspyrnuþjóðir á listanum og því óhætt að segja að staða Íslands á listanum sé með eindæmum góð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×