Sport

Íslendingarnir í enska í dag

Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Charlton sem mætir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikirnir á Englandi hófust nú kl. 14. Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea vegna meiðsla. Þá er Heiðar Helguson á varamannabekk Fulham sem tekur á móti West Ham. Bjarni Guðjónsson er á varamannabekk Plymouth sem mætir Burnley í ensku 1. deildinni, Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru báðir í byrjunarliði Reading sem leikur við Crewe, Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Leicester gegn sínum gömlu félögum í Wolves og Gylfi Einarsson er í byrjunarliði Leeds sem heimsækir QPR.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×