Sport

Chelsea vann toppslaginn

Chelsea lagði Charlton 2-0 í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag og eru Englandsmeistararnir því eina liðið með fullt hús stiga að loknum 6 leikjum. Hernan Crespo og Arjen Robben skoruðu mörkin. Hermann Hreiðarsson lék að venju allan leikinn í liði Charlton en Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Chelsea vegna meiðsla. Nýliðar West Ham unnu 1-2 útisigur á Fulham þar sem Heiðar Helguson sat allan tímann á varamannabekk Fulham. Portsmouth og Birmingham gerðu 1-1 jafntefli og sömuleiðis Sunderland og W.B.A, 1-1. Chelsea er með 6 stig forskot á toppi deildarinnar en Charlton á leik til góða í 2. sæti með 12 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×