Sport

Didier Deschamps hættur hjá Mónakó

Didier Deschamps er hættur sem knattspyrnustjóri hjá franska úrvalsdeildarliðinu Mónakó en liðinu hefur ekki gengið vel það sem af er leiktíð. Eftir 2-0 tap gegn Rennes um helgina ákvað Deschamps að segja af sér. Michael Pastor, forseti Mónakó, er nú byrjaður að leita að eftirmanni Deschamps og þykir líklegt að hann leiti út fyrir Frakkland eftir knattspyrnustjóra..



Fleiri fréttir

Sjá meira


×