Sport

Jarosik slær í gegn hjá Birmingham

Tékkinn Jíri Jarosik hefur byrjarð tímabilið frábærlega með Birmingham City, en hann kom til félagsins frá Chelsea fyrir skemmstu. "Ég er mjög ánægður með það hvernig hefur gengið hjá Birmingham. Þetta er gott félag sem ég get vel hugsað mér að vera hjá í langan tíma, ef vel gengur." Jarosik skoraði aldrei fyrir Chelsea á síðustu leiktíð en hefur nú þegar skorað tvö mörk fyrir Birmingham City, sem hefur þó ekki byrjað leiktíðina eins og vonir stóðu til um. "Mér finnst við hafa spilað vel en við þurfum að vera þéttari í varnarleiknum. Með góðum varnarleik eflist sjálfstraustið og ég er viss um að við getum barist um að komast í Evrópukeppni á næsta tímabili."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×