Sport

Rooney á að fara til sálfræðings

David James, fyrrum aðalmarkvörður enska landsliðsins og leikmaður Manchester City, segir að Wayne Rooney ætti að fara til íþróttasálfræðings til að leita sér hjálpar við skapferli sínu, sem hefur hvað eftir annað komið honum í vandræði undanfarið. "Það er ekkert að því að fara til sálfræðings. Þó menn fari til sálfræðings, þarf það ekki að þýða að menn séu eitthvað bilaðir. Rooney er bara ungur maður undir gríðarlegu álagi og því held ég að það myndi hjálpa honum sem knattspyrnumanni og sem persónu. Ég gerði þetta sjálfur og skammast mín ekkert fyrir það, enda gerði það mér mjög gott," sagði James, en ekki er víst að Rooney taki jafn vel í tillögu fyrrum félaga síns í enska landsliðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×