Sport

Liverpool getur unnið hvern sem er

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segist merkja framfarir hjá liði sínu frá í fyrra, jafnvel þótt það hafi ekki byrjað deildarkeppnina í ár með neinum glæsibrag, enda aðeins sex stig og eitt mark komið í hús í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins. "Mér finnst aðalatriðið vera að sjá batamerki á leik liðsins og ég sé það leik frá leik. Mér finnst liðið vera að leika betur en í fyrra og nú förum við inn í hvern leik með það fyrir augum að geta sigrað, en í fyrra var það ekki alltaf raunin," sagði Benitez, en eini sigur liðsins kom eftir mark úr aukaspyrnu á móti slöku liði Sunderland, sem var lengst af einum leikmanni færri í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×