Sport

Mido fær ekki lengra bann

Egypski framherjinn Mido hjá Tottenham verður leikfær með liði sínu í gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi, en hann klárar að taka út þriggja leikja bann sitt gegn Grimsby í bikarnum í kvöld. Búist var við að Mido fengi lengri refsingu fyrir rauða spjaldið sem hann fékk á móti Chelsea á dögunum, því hann fór ekki strax af leikvelli eftir brottreksturinn. Hann hefur æ síðan haldið fram sakleysi sínu í málinu og hefur nú verið sýknaður af frekari ákærum. Þetta eru góð tíðindi fyrir lið Tottenham, sem var í miklum vandræðum í fjarveru hans, enda eru þeir Robbie Keane og Jermain Defoe ekki háir í loftinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×