Sport

Góð tíðindi fyrir Boro

NordicPhotos/GettyImages
Steve McClaren, stjóri Middlesbrough fagnar því um þessar mundir að fimm leikmenn liðsins sem hafa verið meiddir eru að snúa til baka og verða væntanlega í leikmannahóp liðsins um helgina þegar það mætir Sunderland. Þetta eru þeir Jimmy Floyd Hasselbaink, Chris Riggott, Szilard Nemeth, Stuart Parnaby og síðast en ekki síst Spánverjinn Gaizka Mendieta, sem hefur lítið leikið með liðinu á síðasta ári vegna meiðsla. Miklar vonir voru bundnar við lið Middlesbrough í ár, en stjörnum prýtt lið þeirra hefur ekki staðið undir væntingum það sem af er. "Það vantar dálítið drápseðli í liðið okkar," sagði Ugo Ehiogu, varnarmaður liðsins. "Við þurfum að vera duglegri við að klára leiki, í stað þess að hleypa andstæðingum okkar alltaf inn í leikina aftur," sagði hann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×