Sport

Gústaf tekur við Haukum

Gústaf Adolf Björnsson er tekinn við þjálfun 1. deildarliðs Hauka í fótbolta. Gústaf Adolf var ráðinn á mánudagskvöld eftir að stjórn Hauka hafði nýtt sér uppsagnarákvæði í samningi Izudin Daða Dervic sem þjálfaði Hauka síðustu tvö sumur. Honum til aðstoðar verður Brynjar Þór Gestsson, sem þjálfaði Huginn frá Seyðisfirði í 2. deildinni í sumar."Nú er ætlunin að hér leggist allir á eitt og reyni að nálgast hitt liðið í Hafnarfirði. Það er mikið verk fyrir höndum ef það á að takast," sagði Gústaf Adolf í samtali við Fréttablaðið í gær. Gústaf Adolf hefur þjálfað í öllum deildum á undanförnum árum að 1. deild undanskilinni, hjá Keflavík, Hetti Egilsstöðum og nú í sumar hjá Selfossi. Haukar lentu í 8. sæti 1.deildar og voru aðeins stigi frá falli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×