Sport

Campo frá í tvo mánuði

NordicPhotos/GettyImages
Úrvaldseildarlið Bolton varð í dag fyrir því áfalli að spænski miðjumaðurinn Ivan Campo fótbrotnaði á æfingu og talið er víst að hann verði frá keppni í tvo mánuði fyrir vikið. Campo hefur verið lykilmaður í liði Bolton síðan hann kom til liðsins, en hann var áður hjá Real Madrid á Spáni. "Campo lenti í slæmri tæklingu á æfingu og verður frá í lágmark sex til átta vikur. Þetta er svo sannarlega eitthvað sem við þurftum ekki á þessum tímapunkti," sagði Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×