Sport

Carrick frá í tvær vikur

Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Tottenham verður frá keppni í um það bil tvær vikur eftir að hafa snúið sig á ökkla í leik liðsins við Grimsby í deildarbikarnum í gærkvöldi, en það er leikur sem hann vill eflaust gleyma sem fyrst eins og aðrir leikmenn liðsins. "Michael sneri sig nokkuð illa í leiknum í gær, ég hef séð það á myndbandi og það leit ekki vel út. Ég held þó að það taki hann ekki meira en um tvær vikur að jafna sig af þessu, en það þýðir engu að síður að ég þarf að reyna enn eina uppstillinguna á miðjunni hjá mér gegn Fulham um helgina," sagði Jol mæðulega í dag, en hann sendi leikmönnum sínum pistilinn eftir tapið í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×