Sport

Pálmi á förum frá KA

Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður KA í knattspyrnu sem þjálfarar og fyrirliðar 1.deildar karla völdu sem leikmann ársins í kjöri sem fótbolti.net stóð fyrir, er að öllum líkindum á förum frá félaginu. Pálmi Rafn, 21 árs miðjumaður, segir það nokkuð öruggt að hann fari frá félaginu. "Þetta er nokkuð neglt. Ég held að stjórnarmenn hjá félaginu skilji mig mjög vel, þeir vita hvert metnaður minn liggur. Ég skil mjög sáttur við félagið, það hefði auðvitað verið gaman að komast upp í úrvalsdeild í ár en ég er mjög ánægður með þau þrjú ár sem ég átti hér."Pálmi Rafn sagðist ekki hafa gert upp hug sinn hvert hann vilji halda á næsta ári. "Það koma öll lið til greina í úrvalsdeildinni sem hafa einhvern áhuga," sagði Pálmi Rafn á léttu nótunum en það er deginum ljósara að fjölmörg lið eiga eftir að reyna að klófesta kappann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×