Sport

Tony Pulis á leið til Plymouth

NordicPhotos/GettyImages
Knattspyrnustjórinn Tony Pulis er sagður vera kominn á fremsta hlunn með að skrifa undir samning um að þjálfa Plymouth Argyle, lið Bjarna Guðjónssonar í ensku fyrstu deildinni. Pulis var áður á mála hjá Stoke City eins og Íslendingum er kunnugt, en kaldhæðni örlaganna er sú að ef hann tekur við liðinu á næsta sólarhring eins og búist er við, verður fyrsti heimaleikur hans með liðið einmitt gegn Stoke City nú um mánaðarmótin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×