Sport

Verðum að vinna næstu tvo leiki

Paul Scholes hjá Manchester United gaf út þá yfirlýsingu í dag að ef Manchester United vinnur ekki sigur á Blackburn og Fulham í næstu tveimur deildarleikjum sínum, geti liðið einfaldlega gleymt því að stríða Chelsea eitthvað í titilslagnum í vetur. Þessi orð hans koma í kjölfar þess að United hefur þurft að sætta sig við jafntefli í síðustu tveimur leikjum sínu í deildinni og þrátt fyrir mjög góðan varnarleik, hefur liðinu ekki tekist að skora nógu mörg mörk. "Fyrir utan leikinn við Arsenal, hefur Chelsea ekki verið að spila við mjög sterk lið, á meðan við höfum spilað mjög erfiða leiki. Ég held samt að ef við náum ekki sex stigum út úr næstu tveimur leikjum, höfum við ekkert í þessa toppbaráttu að gera," sagði Scholes.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×