Sport

Djurgarden í úrslit

Djurgarden, lið Kára Árnasonar í sænska boltanum, komst í kvöld í úrslit bikarkeppninnar þegar liðið lagði Elfsborg 2-1. Kári lék vel í kvöld og lagði meðal annars upp síðara mark liðsins. Djurgarden mætir fyrstu deildar liðinu Atvidaberg í úrslitaleik keppninnar í lok október. Þá komst Molde í úrslit norska bikarsins í kvöld með því að leggja Hönefoss 1-0 og mætir Lilleström í úrslitunum þar í landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×