Sport

Neville frá í sex vikur

NordicPhotos/GettyImages
Nú er ljóst að varnarmaðurinn Gary Neville hjá Manchester United verður frá keppni í sex vikur eftir að hann fór í uppskurð vegna meiðsla í nára. Búist var við að Neville yrði klár í slaginn um helgina, en honum sló niður á æfingu og var því drifinn í uppskurð. Þetta er liði United mikið áfall, því nú hefur það misst báða bakverði sína í langvarandi meiðsli á stuttum tíma. "Það tekur menn jafnan mánuð að jafna sig eftir svona aðgerð og aðrar tvær að ná sér í stand á ný. Þetta er okkur mikið áfall, en það var ekki um annað að ræða en að drífa hann í aðgerðina," sagði Alex Ferguson, stjóri Manchester United.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×