Sport

Óvissa með framtíð Henry

NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger hefur viðurkennt að framtíð franska framherjans Thierry Henry hjá Arsenal sé óljós og bendir á að hann sé alls ekki viss um að félagið geti haldið leikmanninum í sínum röðum. "Ég get ekki fullyrt að Henry verði hjá okkur á næsta tímabili vegna nýju reglugerðar FIFA, því hún gerir mönnum kleift að fara frá liðum sínum án þess að tala við kóng eða prest. Það er samt heldur snemmt að tala um þessa hluti, því það er nú bara september ennþá, en ég vil taka það skýrt fram að hjá okkur er 100% ásetningur um að semja við hann og halda honum hér," sagði Arsene Wenger.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×