Sport

Hermann hrósar félögum sínum

Hermann Hreiðarsson telur að leikmennirnir sem keyptir voru til félagsins í sumar og hreint og klárt hungur, séu ástæður þess að Charlton hefur byrjað svo vel í ensku úrvalsdeildinni í haust, en liðið hefur þegar unnið þrjá útileiki. "Við erum tvímannalaust með sterkari hóp, meiri reynslu og svo eru leikmennirnir hungraðari en áður. Hópur okkar er orðinn stór og sterkur, þannig að nú er keppni um hverja stöðu í liðinu og ég held að það gæti verið hluti af ástæðunni fyrir því að okkur gengur betur," sagði Hermann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×