Sport

Wenger vill stig fyrir mörk

NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger hefur fundið lausnina á dræmri aðsókn á leiki í ensku knattspyrnunni og segir að umbuna ætti liðum sem spila sóknarknattspyrnu með því að gefa þeim stig fyrir að skora mörg mörk. "Það væri reynandi að gefa liðum með gott markahlutfall stig fyrir árangur sinn, til að mynda ef lið sigraði 3-0 eða 5-2, þá fengi það sérstaka umbun fyrir að vinna með nokkrum mörkum og ég held að slíkt myndi hvetja lið til að sækja meira," sagði Wenger í samtali við News of the World. "Sjáið bara lið eins og Brasilíu og Real Madrid. Þessi lið eru þekkt fyrir sóknarknattspyrnu og hafa alltaf náð frábærum árangri með því að spila sóknarbolta," sagði Wenger.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×