Sport

Ekki samið aftur við Krankl

Austurríska knattspyrnusambandið ætlar ekki að endurráða Hans Krankl sem landsliðsþjálfara þegar samningur hans rennur út í árslok. Austurríkismenn eiga ekki lengur möguleika á því að komast í úrslit heimsmeistarakeppninnar á næsta ári. Forseti austuríska knattspyrnusambandsins vill fá Josef Hickersberger til þess að leysa Krankl af hólmi. Hickersberger, sem núna þjálfar Rapíd Vín, var landsliðsþjálfari Austurríkismanna á árunum 1987-1990.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×