Sport

Enska fyrsta deildin í kvöld

Íslendingarnir í enska boltanum riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í enska boltanum í kvöld, en leikið nokkrir leikir voru á dagskrá í fyrstu deildinni og þá töpuðu Guðjón Þórðarson og félagar í Notts County nokkuð illa í kvöld. Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn með liði sínu Leicester City þegar það gerði markalaust jafntefli við Brighton og bróður hans Bjarna var skipt útaf eftir 56 mínútur í liði Plymouth, sem tapaði 2-0 fyrir Sheffield United. Þá tapaði Stoke City illa 3-0 á heimavelli fyrir Cardiff. Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar hjá Notts County steinlágu á útivelli gegn Grimsby, 4-0.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×